english/íslenska
Skoðaðu heimasíðuna okkar
Sendu okkur tölvupóst  
 


Hótel Höfðabrekka er við þjóðveg nr.1 um 5 km austan við Vík í Mýrdal. Þar eru 38 vel búin tveggja manna herbergi með baði og 3 herbergi án baðs.

Á hótelinu er veitingastaður sem tekur allt að 100 manns í sæti.

Gestgjafarnir á Höfðabrekku hafa ætíð lagt áherslu á góða og persónulega þjónustu, góðan mat og vinalegt umhverfi í veitingasal sínum.


Heitir pottar eru við hótelið þar sem notalegt er slaka á og njóta kyrrðarinnar. Hótel Höfðabrekka er kjörinn staður fyrir starfsmannahópa að halda árshátíðir eða fyrir ráðstefnur.

   

Við Höfðabrekku er landslag fagurt og stórbrotið, há fjöll og jöklar sem og eyðisandar og sjálft úthafið, mikilúðlegir. Fuglalíf er afar fjölskrúðugt í hömrum og á söndum við sjóinn. Kirkja var á staðnum frá fornu fari og á kaþólskri tíð var hún helguð Ólafi helga Noregskonungi. Bærinn stóð á fyrritíð á sléttlendi fyrir framan Höfðabrekkuhamra, en í miklu Kötlugosi og jökulhlaupi 1660 eyðilagðist bærinn. Sagt er að framburðurinn hafi verið svo mikill að þar hafi verið komið þurrlendi að morgni sem var 20 faðma sjávardýpi kvöldið áður. Eftir þetta var bærinn fluttur upp á heiðina og stóð þar fram til ársins 1964, er hann var byggður upp fyrir neðan Höfðabrekkuháls.


 
| Hótel Höfðabrekka | Mýrdal 871 Vík | Sími: 487-1208 | Fax: 487-1218 |


 
Activities | Accommodation | Car Rentals | Culture | Restaurants
Tours & Transportation | Taxfree Shopping | Sitemap | Home

Please mail to webmaster@travelnet.is if you have any comments or questions about this website. Copyright 1997-2009 Travelnet.is