![]() |
|
![]() |
Gaman
er að koma í Húsdýragarðinn og kynnast lifnaðarháttum dýranna.
Þar eru ekki eingöngu íslensk húsdýr, heldur einnig dýr, sem lifa villt í
íslenskri náttúru. Enda er það hlutverk garðsins að auka skilning og áhuga fólks
á umhverfismálum og dýravernd. Húsdýragarðurinn er opinn allan ársins hring.
Nánari upplýsingar um daglegar uppákomur fást í síma |
![]() |
Alltaf er líf og fjör í Fjölskyldugarðinum fyrir unga sem aldna. Þar eru mörg skemmtileg leiktæki og vaðpollur, þar sem börnin geta buslað á góðviðrisdögum. Enginn þarf að fara heim þegar hungrið sverfur að, því í garðinum er stórt grill, þar sem hægt er að grilla pylsur, sem fást keyptar í veitingasölunni. Einnig er hægt að taka með sér nesti að heiman og skella því á grillið. Við grillið er gott að setjast niður með bitann sinn, hvílast um stund og halda síðan aftur í fjörið. |
![]() |
Fjölskyldugarðurinn
er opinn alla daga yfir sumartímann frá júní fram í septembar. Upplýsingar fást í
síma |
![]() |