 

Hópferðaþjónusta Reykjavíkur
Síðusel 7, 109 Reykjavík
Sími 587 8030 - Fax 587 8031
|
Nýjung
í hópferðamöguleikum hreyfihamlaðra og aldraðra

Nú bjóðast hópferðir fyrir hreyfihamlaða og aldraða
í sérútbúnum hópferðabíl sem er sá fyrsti sinnar tegundar hérlendis. Eins og
áður er einnig boðið upp á almennar hópferðir. Skipuleggjum einnig ferðir fyrir
hreyfihamlaða um Ísland.
Hópur fatlaðra sænskra ferðamanna
í hringferð um landið |
| Þetta
hefur verið afskaplega ánægjuleg ferð og við höfum ekki rekist á neinar hindranir
sem ekki hefur verið hægt að yfirstíga. |
Við
höfum ferðast víða um lönd, en hvergi fundið fyrir eins góðu viðmóti og hér á
Íslandi, þjónustan sem við höfum fengið er alveg frábær. |
Við
komumst öll út að skoða þessa merkilegu staði, nú þurfum við ekki að skilja
neinn eftir í bílnum. Við höfum aldrei upplifað annað eins ævintýri! |
____________________________________________________
Morgunblaðið 27.8.1996 |
|