|
Verið
velkomin til Hafnarfjarðar, í landnám Ásbjarnar Özurarsonar. Í dag
nær lögsagnarumdæmi Hafnarfjaðar yfir þéttbýlið við fjörðinn
og 25 km suður fyrir það að háhita- og hverasvæðinu í Krísuvík
og vestur fyrir Straumsvík. Saga bæjarins er samofin sögu verslunar á
Íslandi. Á 15. Öld kepptu englendingar og þjóðverjar um ítök í
fiskveiðum og verslun í bænum og um tíma var bærinn kallaður
þýskur „Hansabær“.
Hér settist Bjarni Síverstsen, sem við köllum faðir bæjarins, að
og hóf útgerð og verslun um síðustu aldamót. Í dag er
sjávarútvegur, iðnaður og verslun auk vaxandi ferðaþjónustu helstu
atvinnuvegir Hafnfirðinga.
Í landi Hafnfjarðar eru margar náttúruperlur, hér má sjá
margbreytileika íslenskrar náttúru, hraunið, hitann, vötnin og
tjarnirnar auk margs konar fugla- og plöntulíf og sumt fágætt.
Við sem búum í Hafnarfirði erum stolt af bænum okkar hvort heldur
vísað er til hans sem menningarbæjarins, íþrótta- og
útivistarbæjarins eða Vina-, Álfa-, Brandara- eða Víkingabæjarins.
Íbúar bæjarins eru á 18 þúsund. Af framansögðu er ljóst að
Hafnarfjörður býður gestum sínum upp á að njóta margvíslegrar
dægrardvalar og fjölbreyttrar þjónustu.
Við bjóðum þér góði gestur að njóta með okkur og vonum að þú
eigir ánægjulegar stundir hjá okkur.
|
Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-1999 NORAD
ehf. |
|




|