|

Garðabær er ungt
bæjarfélag, fékk kaupstaðarréttindi 1. Janúar 1976 og voru íbúar
þá 4.200 en um síðustu áramót voru þeir 7.800. Árið 1960 var
Garðakauptún . lögilt sem verslunarstaður og voru íbúar þá um
730, byggðin hefur því vaxið hratt. Upphaf búsetu í landi
Garðabæjar má rekja allt aftur til landnámstíðar, í Landnámabók
er getið tveggja jarða innan núverandi bæjarmarka, Skúlastaða og
Vífilstaða. Talið er að Skúlastaðir hafi annað hvort verið þar
sem nú er kirkjustaðurinn Garðar eða að Bessastöðum.
Þrátt fyrir hraða þróunn
byggðarinnar býður Garðabær íbúum sínum þjónustu til jafns við
það sem hún gerist annars staðar. Íbúar Garðabæjar
og gestum þeirra gefst nú kostur á að afla sér upplýsinga um
þjónustu bæjarins á Veraldarvefnum. Þeir sem skoða
síður Garðabæjar á Ferðanetinu komast að því að í bænum má
njóta fjölbreyttrar þjónustu á sviði tómstundar og dægrardvalar
og oftar en ekki útivistar og fagurrar náttúru.
Íþróttamiðstöðin
Ásgarður er eitt af stærstu og glæsilegustu íþróttamannvirkjun á
landinu. Húsnæði Ásgarðs er einnig heppilegt til margra annarra nota
en íþróttaiðkunar t.d. sýningahald, ráðstefnur og þing. Aðal
íþróttavellir bæjarins eru við Ásgarð. Sundlaugin okkar er mjög
góð, með barnalaug, rennibraut gufuböðum sólarlömpum ofl.
Göngu og skokkleiðir í
ósnortinni náttúru eru óvíða í þéttbýli jafn skamman spöl frá
byggð og í Garðabæ. Gálgahraun, Heiðmörk o g
Reykjanesfólkvangur eru kjörin útivistarsvæði til gönguferða og
náttúruskoðunnar. Reiðleiðir liggja frá svæði hestamanna á
Kjóavöllum og tengjast leiðum frá hesthúsasvæðum í Hafnarfirði,
Kópavogi og Reykjavík. Stangveiði, golf og siglingar er einnig meðal
þess sem í boði er í Garðabæ.
Land Garðabæjar er mjög
fjölbreytt og setja vötn, lækir, hraun, og fjara svip sinn á
byggðina. Bærinn hefur gengist fyrir uppgræðslu og gróðursetningu
á opnum svæðum og í íbúðahverfum svo og frágangi göngustíga.
Það er von okkar í
Garðabæ að þeir sem sækja okkur heim njóti vel af því sem bærinn
okkar og fyrirtæki í honum hafa að bjóða og fari ánægðir frá
okkur.

|
Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-1999 NORAD
ehf. |
|