![]() ![]() |
||
|
. |
Þrátt fyrir að
Reykjavíkurborg sé ekki stór borg á heimsvísu hefur hún á sér
stórborgarbrag. Aðstaða sú sem íbúum og gestum borgarinnar er búin á
ýmsum sviðum er mjög góð á alþjóðlegan mælikvarða. Má í því
sambandi nefna gróskumikið menningarlíf og góða aðstöðu til
útivistar og hreyfingar, öflugt félags- og tómstundastarf fyrir alla
aldurshópa og góða félagslega þjónustu.
Reykjavíkurborg er mikilvægasta þjónustufyrirtæki borgarbúa og aðgangur að upplýsingum er lykilatriði, bæði til þess að íbúarnir geti nýtt sér þá þjónustu sem borgin veitir og einnig til þess að greiða aðganginn að stjórnkerfi borgarinnar og ýmiss konar starfsemi á hennar vegum. Upplýsingum til íbúa Reykjavíkur er komið á framfæri með fjölbreyttum hætti. Í fyrsta lagi er þar um að ræða hefðbundna umfjöllun í fjölmiðlum, þ.e. í dagblöðum og ljósvakamiðlum, tímaritum, sérritum og upplýsingabókum. Á Internetinu eða Veraldarvefnum http://www.reykjavik.is er að finna ýmiss konar upplýsingar um Reykjavíkurborg og leiðarvísi um hvernig rata megi um borgarkerfið en heimasíða Reykjavíkurborgar þar er í stöðugri þróun. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar eru nú u.þ.b. 2000 síður af upplýsingaefni um borgina. Borgarfréttum er dreift reglulega á hvert heimili í Reykjavík en tilgangurinn með útgáfu slíks fréttabréfs er að kynna fyrir borgarbúum ýmis nýmæli og framkvæmdir á vegum borgarinnar. Útvarpað er frá fundum borgarstjórnar á Aðalstöðinni á FM 90,9 og nýta margir þann möguleika til þess að fylgjast með umræðu um borgarmálin. Borgarstjórnarfundir eru haldnir hálfsmánaðarlega, fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar. Þá hafa borgaryfirvöld tekið upp þau nýmæli að bjóða borgarbúum til opinna funda um tiltekin málefni og málefni einstakra hverfa í borginni og það fyrirkomulag hefur reynst vel. Loks vil ég nefna upplýsingahandbók Reykjavíkurborgar sem dreift er til borgarbúa um rekstur og starfsemi Reykjavíkurborgar og auðvelda á fólki að rata rétta leið í borgarkerfinu. Reykjavíkurborg hefur það að markmiði að auka áhrif íbúanna á stjórn borgarinnar og mótun umhverfis síns. Ég hvet borgarbúa til þess að kynna sér þær upplýsingar sem er að finna um Reykjavíkurborg hér á heimasíðu Reykjavíkurborgar og annars staðar, nýta sér þá möguleika sem borgin býður upp á og láta sig málefni borgarinnar varða. Þau eru mál okkar allra. |
|
| Please
mail to webmaster@travelnet.is if you have any comments or questions about this website. Copyright 1997-2004 Travelnet Last update 29/06/2004 |