Back to Homepage

 

Travelnet.is

transp.gif (848 bytes)
Back to West Iceland

hn_local.GIF (563 bytes)

Velkomin til Snæfellsbæjar

Snæfellsbær er ungt sveitarfélag, myndað við sameiningu Staðarsveitar, Breiðavíkur, Neshrepps utan ennis, Hellissands og Ólafsvíkur. Snæfellsjökull er óneitanlega helsta einkenni byggðarinnar.

Sveitarfélagið geymir óteljandi náttúruperlur til sjávar sem sveitar. Ströndin er margbreytileg. Þar eru langar, mjúkar sandfjörur, stórkostlegar klettamyndanir, hellar og fuglabjörg. Fjöllin ögra göngumanninum af þeim er fagurt um að litast. Sjávarplássin við ströndina með fjölskrúðugt mannlíf í tengslum við íslenska sögu vekja áhuga ferðamannsins.

Þjónusta við ferðamenn er mikilvæg atvinnugrein enda margt í boði. Hægt er að velja um margs konar gistingu frá tjaldsvæðum og svefnpokagistingu til bestu hótela. Matargerðarlist er í hávegum enda óvíða betra hráefni að fá.

Samgöngur hingað sem innan svæðisins eru góðar. Reglulegar ferðir eru með áætlunarbílum. Góður flugvöllur er á Rifi.

Héðan bjóðast margvíslegir kostir til ferðalaga. Í boði eru bátsferðir og siglingar svo sem hvalaskoðunarferðir. Á landi eru lengri og styttri ferðir í boði. Þar má velja skipulega hópferð eða fara á eigin vegum um merktar leiðir akaandi, hjólandi, gangandi eða á hestbaki. Allir geta fundið þar eitthvað við sitt hæfi.

Dægradvöl og afþreying er margvísleg, Í boði er veiði í ám og vötnum eða á sjóstöng. Grasaferðir, gönguferðir jöklaferðir er meðal þess sem í vali er. Hestaleigur, snjósleðaleigur, golfvöllur sundlaug og íþróttasvæði allt eftir þörfum hvers og eins til útivistar. Fyrir þá sem skoða vilja menningar- og söguminjar má benda á byggða- og sjóminjasöfnin á Hellissandi og í Ólafsvík.

Við bjóðum þig velkomin til okkar og megir þú njóta dvalarinnar sem best.

 

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-1999 NORAD ehf.