Ferðaþjónusta
bænda
Sumir segja að ekkert jafnist á við dvöl á bændabýli
fyir þá sem sækja vilja burtu úr skarkala borgarinnar og komast í samband við
náttúruna. Víst er að framboð á afþreyingu er fjölbreytt og eins hitt að með
því að kaupa þjónustuna af bændum er öruggt að þar með er sótt þekking til
þeirra sem best þekkja til á viðkomandi svæði. Þá er það ekki síður mikilvægt
að á þann hátt má tryggja að viðkomandi sé í friði og ekki að brjóta af sér
gagnvart þeim hafa hafa lifibrauð sitt af afrakstri landsins t.d. eins og það að fara
ekki um varplönd þegar það má ekki. Það eru á annað hundrað bændabýli á öllu
landinu sem teljast til ferðaþjónustu bænda. Allir eru hér á skrá. Margir þeirra
hafa kosið að veita frekari upplýsingar um þjónustu sína og keypt af okkur
Þjónustusíðu. Þeir eru merktir með gulu boxi og hvetjum við ykkur til þess að
klikka á gula boxið og sjá hvað þar býr að baki.
|