|
Bakkafjörður liggur suður úr Bakkaflóa. Yst við
fjörðinn að austanverðu er kauptúnið Höfn, sem yfirleitt er nefnt Bakkafjörður.
Höfn varð löggiltur verslunarstaður 1885. Aðalatvinna er einkum bundin við sjósókn
en einnig er Bakkafjörður þjónustumiðstöð fyrir Skeggjastaðahrepp.
Þegar ekið er ofan af Sandvíkurheiðinni í átt til þorpsins er
ekið fram hjá bænum Bakka. Á Bakka bjó "Afi á Knerri"
en hann er aðalpersónan í Fjallkirkjunni eftir Gunnar Gunnarsson
Gamla bryggjan var áður eina aðstaða báta til viðlegu og þurfti
að taka bátana á land eftir hvern róður vegna þess hve höfnin er
skjóllítil. Kraninn, sem þar stendur var notaður í því
skyni. Af bryggjunni má veiða þorsk, ýsu og ufsa.
Á Bakkafirði
er hægt að fá gistingu í farfuglaheimili.
|
Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is |
|