|
Seyðisfjörður fékk kaupstaðarréttindi
1. jan. 1895. Á síðari
hluta 19. aldar fluttu margir Norðmenn til Seyðisfjarðar og hófu síldveiðar. Ber
bærinn þess merki enn í dag því þar stendur fjöldi fagurra timburhúsa af norsk
/svissneskri gerð sem byggð voru um aldarmót.
Menningarlífið
er í miklum blóma, sérstaklega á sumrin. Listahátíðin Á
Seyði er haldin árlega. Sumartónleikarnir Bláa Kirkjan eru
flest miðvikudaskvöld og valinkunnir listamenn sýna verk
sín í menningarmiðstöðinni Skaftfelli. Þá er handverksmarkaður
opinn allt sumarið.
Seyðisfjörður er milkill
ferðamannabær. Þangað siglir Norræna á sumrin með ferðamenn frá Evrópu.
Margar góðar gönguleiðir eru í Seyðisfirði,
t.d. í Vestdal, Bjólf, Loðmundarfjörð og Mjóafjörð.
Tækniminjasafn Austurlands er í húsi sem upphaflega var íbúðarhús
Otto Wathne, byggt árið 1894. Í safninu er sýning sem fjallar
um fjarskipti, ljósmyndun og lækningar.
Sundlaug
er á Seyðisfirði. Gisting og veitingar á Hótel Aldan. Farfuglaheimilið
Hafaldan býður gistingu og eldunaraðstöðu. Tjaldsvæði er nálægt
miðbænum
Boðið er upp á silungsveiði í
Fjarðará og golf á Hagavelli. Skíðaaðstaða er
í Stafdal.
Please
mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is |
|