|
Fljótsdalshérað
er góður kostur
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað varð
til 1. nóvember 2004, við sameiningu Austur-Héraðs,
Fellahrepps og Norður-Héraðs. Fljótsdalshérað
er fjölmennasta sveitarfélag á Austurlandi
með um 3500 íbúa og þar af búa
ríflega 2100 manns í þéttbýlinu
á Egilsstöðum og í Fellabæ sem er
stærsti þéttbýliskjarni á Austurlandi.
Þéttbýlið styður sterk byggð í
dreifbýlinu með blómleg landbúnaðarsvæði
og smærri þjónustukjarna á Hallormsstað,
Eiðum og Brúarási. Sveitarfélagið
er mjög víðfemt og með þeim landmestu
á Íslandi, það afmakast af Biskupshálsi
í vestri, Héraðsflóa í norðri,
Austfjarðafjallgarði í austri og Vatnajökli
og Öxi í suðri.
Fjölbreyttir
búsetumöguleikar
Fljótsdalshérað býður upp á
fjölda möguleika til búsetu, fjölþætta
samfélagslega þjónustu og fjölskylduvænt
umhverfi. Velja má um búsetu í þéttbýliskjörnunum
á Egilsstöðum og í Fellabæ, í
smærri þjónustukjörnum á Hallormsstað,
á Eiðum og í Brúarási, eða
í blómlegum sveitum héraðsins. Íbúaþróun
er jákvæð, uppbygging er hröð og ný
svæði í boði fyrir íbúða-
og atvinnuhúsnæði.
Fjölskyldan
í öndvegi
Möguleikar til menntunar á Fljótsdalshéraði
eru góðir, þar eru fimm leikskólar, fjórir
grunnskólar, þrír tónlistarskólar,
hússtjórnarskóli, menntaskóli og góð
aðstaða til fjárnáms á háskólastigi.
Aðstaða til íþróttaiðkunar er
mjög góð, hægt að velja um fjögur
íþróttahús og þrjár sundlaugar,
þar er glæsilegur íþróttaleikvangur,
skemmtilegur golfvöllur og góð aðstaða
fyrir hestamenn. Tvær félagsmiðstöðvar
eru á Fljótsdalshéraði og kaffi- og menningarhús
ungs fólks. Fjöldi opinberra stofnana hefur bækistöðvar
í sveitarfélaginu og opinber þjónusta
er vel aðgengileg fyrir íbúana.
Úrvalsþjónusta
á krossgötum
Fljótsdalshérað dregur að sér fjölda
ferðamanna árið um kring og aðstaða fyrir
ferðamenn er mjög góð. Hægt er að
njóta þjónustu á góðum veitingahúsum
og hótelum, skoða söfn og ýmsar minjar,
eða dvelja í orlofsbústað, bændagistingu
eða á vel útbúnum tjaldstæðum.
Á Egilsstöðum og í Fellabæ er úrval
verslana með mjög gott vöruúrval og þjónustufyrirtæki
sem taka vel á móti gestum. Þar liggja krossgötur
mikilvægra samgönguleiða innan fjórðungs
og til annarra landshluta, þar er alþjóðlegur
flugvöllur og miðstöð landsamgangna. Tilvalið
er að dvelja á Fljótsdalshéraði og
ferðast þaðan í dagsferðir til annarra
hluta Austurlands.
Blómstrandi mannlíf í hlýlegu
umhverfi
Á Fljótsdalshéraði er framsækið
og kröftugt mannlíf sem ber keim af sérstöku
umhverfi svæðisins. Hlýlegt umhverfi og gott
veðurfar mótar viðmót íbúanna
og gott er að vera gestur á Fljótsdalshéraði.
Þar er afar fjölbreytt og lifandi menningarlíf,
öflug tónlistar-, myndlistar og leiklistarstarfsemi
og fjölþætt starfsemi í klúbbum
og félagasamtökum. Lifandi safnastarf býður
upp á sérsýningar og ýmisskonar kynningar-
og skemmtidagskrár. Fjöldi árvissra menningarhátíða
er haldinn á Fljótsdalshéraði með
þátttöku fjölda listamanna sem laða
að fólk úr öllum landshlutum.
Fögur
náttúra – fjöll og skógar
Fljótsdalshérað er rómað fyrir náttúrufegurð
og gott veðurfar, sem minnir oft á loftslag á
meginlandi Evrópu. Skóglendi einkennir svæðið
og setur mikinn svip á umhverfi og mannlíf og fossar,
vötn og ár setja svip á landið. Þar
eru fjölmargir staðir vel fallnir til útivistar
og margar skemmtilegar gönguleiðir hvort sem er í
skógi eða fjöllum. Dýralíf er fjölbreytt
og góð aðstaða til fuglaskoðunar og hreindýrin
hafa mikið aðdráttarafl. Mjög víða
er gott berja- og sveppaland og ferðir um nálæg
fjalllendi eru vinsælar sumar sem vetur. Stangveiði
er stunduð í ám og vötnum og fá
svæði á Íslandi eru meira spennandi fyrir
skotveiðimenn.
|
Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is |
|

|