Back to Homepage

English

Heimasíða Vopnafjarðarhrepps

transp.gif (848 bytes)

Austurland - Aðalsíða

Vopnafjörður - Á staðnum

 

Vopnafjörður gengur inn í norðausturströnd landsins og er þekktur fyrir náttúrufegurð og veðursæld.

Inn af firðinum liggur samnefnt hérað. Það skiptist í þrjá dali. Syðstur er Hofsdalur, í miðjunni Vesturárdalur og nyrstur Selaárdalur. Um þessa dali renna þrjár af þekktari laxveiðiám landsins Hofsá, Selá og Vesturdalsá. 

Á Burstafelli er einn fegursti og best haldni torfbær landsins og merkilegt minjasafn, fallegar gönguleiðir um fjöll og svipmikla strönd.

Samgöngur við Vopnafjörð eru góðar áætlunarflug er frá Akureyri og Egilsstöðum. 

Í kauptúninu á Vopnafirði býður Hótel Tangi gistingu, í sveitinni er rekin ferðaþjónusta bænda á Syðri-Vík.

Í Selárdal eru heitar uppsprettur og við þær sundlaug með aðstöðuhúsi og heitum potti og útsýni yfir veiðimenn að glíma við þann silvraða.  Á engan er hallað þó sagt sé að sundlaugin í Selárdal eigi fáa ef nokkra sína líka á landinu. 

Golfvöllur er í Vopnafirði, þar er einnig hestaleiga. 

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is

transp.gif (848 bytes)