Back to Homepage

English

Skoðið vef Hafnarfjarðarbæjar

transp.gif (848 bytes)

Höfuðborgarsvæðið - Aðalvalmynd

hn_local.GIF (563 bytes)
Hafnarfjörður - Kort

Víkingabærinn HafnarfjörðurVerið velkomin til Hafnarfjarðar, í landnám Ásbjarnar Özurarsonar. Í dag nær lögsagnarumdæmi Hafnarfjaðar yfir þéttbýlið við fjörðinn og 25 km suður fyrir það að háhita- og hverasvæðinu í Krísuvík og vestur fyrir Straumsvík. Saga bæjarins er samofin sögu verslunar á Íslandi. Á 15. Öld kepptu englendingar og þjóðverjar um ítök í fiskveiðum og verslun í bænum og um tíma var bærinn kallaður þýskur „Hansabær“.
Hér settist Bjarni Síverstsen, sem við köllum faðir bæjarins, að og hóf útgerð og verslun um síðustu aldamót. Í dag er sjávarútvegur, iðnaður og verslun auk vaxandi ferðaþjónustu helstu atvinnuvegir Hafnfirðinga.
Í landi Hafnfjarðar eru margar náttúruperlur, hér má sjá margbreytileika íslenskrar náttúru, hraunið, hitann, vötnin og tjarnirnar auk margs konar fugla- og plöntulíf og sumt fágætt.
Hafnarfjordur Við sem búum í Hafnarfirði erum stolt af bænum okkar hvort heldur vísað er til hans sem menningarbæjarins, íþrótta- og útivistarbæjarins eða Vina-, Álfa-, Brandara- eða Víkingabæjarins. Íbúar bæjarins eru á 18 þúsund. Af framansögðu er ljóst að Hafnarfjörður býður gestum sínum upp á að njóta margvíslegrar dægrardvalar og fjölbreyttrar þjónustu.
Við bjóðum þér góði gestur að njóta með okkur og vonum að þú eigir ánægjulegar stundir hjá okkur.

 

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-1999 NORAD ehf.

transp.gif (848 bytes)
Verið velkomin til Hafnarfjarðar