Back to Homepage

English

Vefur Kópavogsbæjar

Val
Höfuðborgarsvæðið - Aðalsíða

Kópavogur - Á staðnum
Kópavogur - Kort

Kópavogsbúar

Í ört stækkandi og flóknari samfélögum nútímans er boðmiðlun og góðar upplýsingar forsenda þess að samfélagsgerðin virki eins og til er ætlast. Kópavogsbær hefur undanfarin ár stóreflt upplýsingamiðlun til bæjarbúa um fjármál, framkvæmdir og þjónustu bæjarins í þeirra þágu. Enn aukum við upplýsingamiðlunina, nú með því að nýta Veraldarvefinn til þeirrar starfsemi. Með því fáum við tæki í hendurnar sem auðveldar okkur mjög að uppfæra allar upplýsingar þegar þess gerist þörf, þannig tryggjum við enn betur öflugt upplýsingastreymi til bæjarbúa.

Því verður ekki mótmælt að Kópavogur er bær í örum vexti. Þjónusta bæjarins við íbúa sína hefur á síðustu árum stóraukist og er nú með því besta sem býðst á landinu. Í dægradvöl og afþreyingu bjóðum við m.a. íþróttaaðstöðu sem gerist vart betri , hvort heldur til iðkunnar eða kappleikja, sundlaugin okkar er ein sú besta á landinu, Gerðarsafnið, Bókasafnið og Náttúrufræðistofan bjóða upp á listir og fróðleik í ríkum mæli.

Náttúruminjarnar og útivistarsvæðin eru perlur sem þeir fá notið sem una útivist. Gönguleiðir eru margar í bæjarlandinu, aðstaða til margskonar tómstundaiðkunar og útiveru er til staðar svo sem fyrir þá sem stunda hestamennsku, golf, eða siglingar svo nokkuð sé nefnt.

Kópavogsbær og íbúar bjóða gesti sína velkomna í heimsókn og vonast til þess að þeir fari ánægðir eftir að hafa notið dægrardvalar og þjónustu þeirrar sem bærinn og fyrirtæki í Kópavogi hafa fram að færa.

Bæjarstjóri

Vefur Kópavogsbæjar

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is

transp.gif (848 bytes)
sparkop.gif (4094 bytes)