Back to Homepage
transp.gif (848 bytes)

transp.gif (848 bytes)
HöfuðborgarsvæðiðÁ staðnum

myndir

Þú þarft Acrobat
Reader til að skoða ferðabæklinginn

 


Velkomin í Mosfellsbæ

Mosfellsbær er rétt norðan við Reykjavík og kjörinn staður til heimsókna og dægradvalar.  Þar búa nú rúmlega 6.000 íbúar,  Mosfellsbær hlaut kaupstaðarréttindi árið 1988.

Bæjarfélagið samanstendur af þéttbýliskjarna við Leirvog þar sem boðin er öll almenn þjónusta og víðáttumikilli sveit sem alls eru 220 ferkílómetrar.  Bærinn býður upp á margskonar afþreyingu á sviði lista, íþrótta og útiveru.
 
Í bæjarfélaginu er fjölbreytt listastarfsemi. 
Í gömlu verksmiðjuhúsunum í Álafoss-kvosinni hefur myndast vísir að listamiðstöð.  Þar hefur sest að hópur listamanna með vinnustofur sínar og þar er hægt að skoða afrakstur þeirra. Listasafn er að Hulduhólum og bæjarleikhús þar sem Leikfélag Mosfellssveitar setur reglulega upp leiksýningar. Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxnes bjó að Gljúfrasetini í Mosfellsdal. 

Óvíða er aðstaða til íþróttaiðkana betri en í Mosfellsbæ.  Varmárvöllur er einn albesti frjálsíþróttavöllur landsins.  Í  íþróttamiðstöðinni að Varmá má stunda sund og ýmisskonar líkamsrækt.  Tveir golfvellir eru í bænum
og stutt í skíðasvæðið í Skálafelli.

 Landkostir svæðisins bjóða þeim sem unna útiveru marga valkosti.  Gönguleiðir eru góðar í fjöru og til fjalla og allsstaðar þar á milli.   Margar náttúruperlur og sögustaðir eru í Mosfellsbæ s.s.Tröllafoss og Mosfellskirkja svo eitthvað sé nefnt.  Bæjaryfirvöld hafa lagt metnað sinn í að fegra umhverfi bæjarinns með gróðursetningu trjáa og runna, og uppbyggingu útivistasvæða við Varmá.

Ferðamönnum og þeim sem sækja bæinn heim stendur margskonar þjónusta til boða.  Þar eru tvær sveitakrár og nokkrir skyndibitastaðir.  Einnig er hægt að kaupa ullarfatnað á góðu verði ásamt ýmiskonar listvarningi.  Verslunarkjarni er í miðbæ.  Tíðar almenningssamgöngur eru á milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur og því auðvelt að komast á milli.





 


Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-1999 NORAD ehf.

transp.gif (848 bytes)