|
Akureyri
er staðsett á NA- landi,
við lengsta fjörð landsins, Eyjafjörð, umlukin 1000-1500 m.
háum fjöllum. Einungis eru um 40 km. að heimsskautsbaug. Á Akureyri
má vænta hlýrra sumardaga, þar sem hitastigið fer
vel yfir 20 gráður , vetur eru snjóþungir og kaldir, en
stillur og staðviðri algeng.
Staðsetning Akureyrar,
svo norðarlega, hefur haft töluverð áhrif á það samfélag sem
þar hefur mótast. Þrátt fyrir landfræðilega einangrun hafa
samskipti við umheiminn verið mikil, fyrst í gegnum verslun, síðan
útflutning og þá aðallega
sjávarafurða
Talið
er að landnám við Eyjafjörð hafi byrjað um
890, þegar víkingurinn Helgi magri kom þar fyrst að landi
ásamt konu sinni, Þórunni hyrnu.
Saga bæjarins tengist
mjög verslun og þjónustu. Verslun hófst á Akureyri á 16. öld en
það var ekki fyrr en árið 1760 sem kaupmenn tóku að dvelja þar
allt árið um kring. Endanleg kaupstaðarréttindi fékk Akureyri 1862
og voru íbúar þá um 300 talsins.
Akureyri er stærsta
bæjarfélag utan höfuðborgarsvæðisins, með um 15.000 íbúa. Þar
er mjög fjölbreytt atvinnulíf, en Akureyri er miðstöð verslunar og
þjónustu á N-landi. Aðstaða til ráðstefnu-og fundarhalda er ein
sú besta á landsbyggðinni.
Hlutverk
bæjarins sem menntamiðstöðvar er stórt og fer vaxandi, sérstaklega
eftir að Háskólinn á Akureyri tók til starfa 1987.
Menningar og
skemmtanalíf er í miklum blóma á Akureyri. Má þar nefna
synfoníuhljómsveit, leikhús, listasöfn, kaffi- og veitingahús og
skemmtistaði. Þá er úrval verslana í bænum, er bjóða þekkt
vörumerki.
Íþrótta og
tómstundarstarf er einnig öflugt. Sundlaug Akureyrar er glæsileg, en
hún er hituð með heitu vatni úr iðrum jarðar.
Líkamsræktarstöðvar eru nokkrar í bænum, golfvellir og
íþróttavellir og skíðasvæðið er eitt það besta á landinu.
Akureyri má með sanni kalla paradís vetraríþróttamannsins. Á
Akureyri er gott skautasvell, mjög góðar gönguskíðaleiðir
í gegnum fjölbreytt landslag auk þess, sem eins og áður
sagði, eru þar góðar
brekkur fyrir svigskíða-og snjóbrettamenn. Þar eru haldin nokkur
skíðamót á vetri m.a. alþjóðleg mót.
Þá er auðvelt fyrir hópa og einstaklinga að komast í jeppa-
og snjósleðaferðir.
Allt umhverfi bæjarins er mjög gróðursælt, enda ekki að ósekju að
hann hefur verið nefndur græni bærinn. Innan bæjarmarkanna er að
finna skógarsvæði (Kjarnaskóg) sem er vinsælt útivistarsvæði á
sumrin jafnt sem veturna. Þar eru ýmsar skemmtilegar göngu- og
gönguskíðaleiðir.
Lystigarðurinn á
Akureyri er norðlægasti garður sinnar tegundar í heimi með fjöldann
allann af plöntum og blómum, enda hefur
hann vakið mikla athygli erlendra ferðamana.
Eyjafjörður, með
Akureyri sem
miðpunkt, er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins.
Gönguleiðir eru fjölmargar og eru margar þeirra kortlagaðar.
Hestaferðir eru vinsælar, jeppaferðir og snjósleðaferðir einnig.
Hægt er að komast í veiði í ám og vötnum.
Nyrsti golfvöllur heims
er á Akureyri. Þar fer
fram í júní, ár
hvert alþjóðlegt mót er nefnist Artic Open og er
fjöldi erlendra golfmanna ávallt meðal þáttakenda.
Mótið hefur vakið verðskuldaða athygli erlendis, enda er
leikið fram yfir miðnætti í miðnætursólinni.
Þá eru talsvert margar uppákomur á sviði menningar- og lista.
Auðvelt er að fara í
dagsferðir frá Akureyri til margra áhugaverðra staða. Má þar
m.a.nefna Goðafoss, Mývatn, Dettifoss, Hrísey og Grímsey en þess má
geta að Grímsey liggur þvert á heimsskautsbaug.
Fjölbreyttir
gistimöguleikar eru til staðar á
Akureyri og í nágrenni bæjarins.
Akureyri býður upp á
allt það helsta sem einungis er að
finna í stærri
bæjarsamfélögum, en býr samt yfir töfrum
smábæjarins.
Verið
velkomin.
|