|
Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð
með rúmlega 2.000 íbúa. Það liggur vel við samgöngum á láði
og legi og hefur margt að bjóða ferðafólki, jafnt um sumar sem
vetur.
Náttúrufegurð á Tröllaskaga er rómuð - langir, djúpir og grösugir
dalir milli hárra fjalla (1.200-1.400 m) gefa fólki kost á gönguferðum
við allra hæfi yfir sumartímann og skíðaferðum að vetrarlagi.
Skaginn er hreinasta ævintýraland fyrir vélsleðafólk.
Fuglalíf er geysifjölbreytt í friðlandi Svarfdæla og úti á
Eyjafirði er stutt að fara vilji menn renna fyrir fisk. Reyndar er óþarfi
að fara á sjó í því skyni því í Þorvaldsdalsá, Svarfaðardalsá
og Hrísatjörn eru ágætis silungsveiði. Og á haustin verða
fjallshlíðarnar dökkar af berjum.
Atvinnulífið í Dalvíkurbyggð
stendur með blóma. Það er blanda af hefðbundnum greinum - landbúnaði og sjávarútvegi - og nýtískulegum
iðnað.
Mennta- og menningarlíf er öflugt
því í sveitarfélaginu eru góðir skólar, virkt og metnaðarfullt leikfélag, landsfrægur kvartett og
ekki færri en fimm kórar, að annarri tónlist ógleymdri.
Á Dalvík er byggðasafn þar sem gefur að líta ýmsa muni sem
tengjast sögu héraðsins. Í einni deild safnsins eru fjölmargir fuglar
og dýr, þeirra á meðal ísbjörn, sem Steingrímur Þorsteinsson stoppaði
upp. Auk þess eru þar deildir sem helgaðar eru minningu tveggja þekktra
Svarfdælinga, þeirra Kristjáns Eldjárns forseta og Jóhanns Péturssonar
Svarfdælings en hann mun vera stærsti Íslendingur sem uppi hefur
verið.
Í Dalvíkurbyggð er hægt að njóta
margvíslegrar þjónustu. Þrjú bílaverkstæði, bensínstöðvar, veitingahús,
handverksgallerí, apótek, heilsugæslustöð, áfengisverslun, sparisjóður, hárgreiðslustofur,
matvöruverslanir, prentsmiðja og þannig mætti áfram telja.
Ýmsir möguleikar eru á gistingu, tjaldstæði, bændagisting og
gistiheimili sem sum hver eru opin allt árið.
Ferðafólk sem sækir Dalvíkurbyggð heim getur valið um margs
konar afþreyingu og útivist. Góð íþróttamannvirki eru á
Dalvík, íþróttavellir, hlaupabrautir og nýleg sundlaug. Í
fjallinu ofan við bæinn er fólkvangur þar sem gott er að vera á sumrum og á vetrum er þar eitt
af betri skíðasvæðum landsins með brekkum fyrir byrjendur jafn
sem meistara og troðnar brautir fyrir skíðagöngufólk.
Í Svarfaðardal er níu holu golfvöllur
á fögrum stað við ána. Þar er einnig elsti yfirbyggði sundskáli landsins og íþróttahús eru
við alla skóla sveitarfélagsins: á Dalvík, í Árskógi og á Húsabakka
í Svarfaðardal. Það er einnig hægt að bregða sér í sjóferðir
frá Dalvík og Hauganesi, skoða hvali, renna fyrir fisk eða bara njóta sjávarloftsins og
útsýnisins. Frá Árskógssandi er haldið uppi reglulegum siglingum milli Hríseyjar
og meginlandsins og frá Dalvík siglir ferja til Grímseyjar.
Þeir sem koma til Dalvíkurbyggðar
að sumarlagi ættu ekki að sleppa því að aka út í Ólafsfjarðarmúla að kvöldlagi því óvíða
gefur að líta fegurri miðnætursól. Hún rennir sér niður undir hafflötinn,
lyftir sér aftur og litadýrðin er ólýsanleg.
|