Back to Homepage

English

transp.gif (848 bytes)

Á leið um landið - Aðalvalmynd
Norðurland - Aðalvalmynd

Grímsey - Á staðnum
Grímsey - Kort

Grímsey er nyrsta eyja við Ísland og með um 115 íbúa. Hún er 5,3 km2 að stærð, 105 m há og liggur 41 km frá landi. Eyjan er gerð úr blágr‡ti, nema hvað sandsteinn er að norðvestan. Hún er hömrum gyrt, nema að sunnan og stuðlaberg víða. Hið efra er hún algróin og ber mest á valllendi, móa- og mosagróðri. Veðurfar er milt, þótt heimskautsbaugurinn liggi um hana þvera og fuglalíf er mikið.

 Höfuðatvinnuvegur Grímseyinga er fiskveiðar og verkun. Einnig stunda þeir landbúnað og hlunnindi, eins og fugla- og eggjatekju. 

Grímsey er sérstakt sveitarfélag og þar var prestssetur fram á miðja þessa öld. 

Kirkjan er í Miðgörðum og er nú þjónað frá Akureyri. Núverandi kirkja var byggð úr rekavið 1867 og gerð upp 1956. Einnig er þar félagsheimili og skóli. Samgöngur við Akureyri eru greiðar, bæði með flóabát og flugvélum. 

Grímsey kemur snemma við sögu. Hún er kennd við Vestfjarða-Grím samkvæmt þjóðsögu. Í Heimskringlu segir frá því er Ólafur Helgi Noregskonungur ágirntist Ísland. Vildu þá sumir gefa honum Grímsey, en aðrir mæltu því gegn, því konungur gæti alið þar manns. Undir lok 18. aldar lá við að eyjan færi í eyði, því að þá dóu flestir karlmenn úr taksótt eða fórust í sjó. 


Seint á 19. öld fengu Grímseyingar orð fyrir færni sína í skák. Bandaríkjamaðurinn Willard Fiske gaf þeim þá manntöfl, bókasafn og fésjóð. Margir ferðamenn sækja nú Grímsey heim á fá gestir gjarna viðurkenningarskjal fyrir að stíga yfir heimskautsbauginn.

 

 

 

 

transp.gif (848 bytes)

Á Leið um Landið | Norðurland  | Grímsey  - Á staðnum | Grímsey - Kort

 

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is