|
Umhverfi Húsavíkur býður upp á
einstaka náttúrufegurð. Húsavík er vel í sveit sett
fyrir þá sem vilja skoða Mývatn, Dettifoss og aðrar
náttúruperlur í nágrenninu.
Húsavík er miðstöð hvalaskoðunar á Íslandi og þar hefur
nú verið opnuð hvalaskoðunarmiðstöð þar sem margt er að
sjá og skoða um hvali og hvaveiðar.
Hvalaskoðunarbátarnir fara út oft á dag og mjög góðar
líkur eru á að sjá hvali.
Það er nóg við að vera á Húsavík, í safnahúsinu er bóka-,
héraðsskajala-,byggða og náttúrugripasafn. Á
náttúrugripasafninu er meðal annars einn stærsti ísbjörn sem
felldur hefur verið á Íslandi. Í húsinu eru einnig
haldnar sýningar á listaverkum heimamanna og annara listamanna.
Hin fagra timburkirkja hefur verið tákn Húsavíkur í nærri
heila öld.
Aðstaða til íþróttaiðkanna er góð, hægt að komast í
veiði bæði lax og silung, hestaleigur í nágrenninu, afbragðs
skíðasvæði og sundlaug.
Boðið er upp á alla ferðaþjónusta frá fyrsta flokks hóteli
til þægilegs tjaldsvæðis og allt þar á milli.

|