Back to Homepage Travelnet.is

transp.gif (848 bytes)
Norðurland

Velkomin til Skagastrandar

Kauptún á vestanverðum Skaga. Það stendur við allbreiða en stutta vík, sem afmarkast að norðan af Spákonufellshöfða, klettaborg úr stuðlabergi. Spákonufellshöfði er friðlýstur fólkvangur. Verslunarstaður frá fornu fari en höfnin þótti hættuleg. Á síðustu árum hefur verið unnið að hafnarbótum og er þaðan rekin öflug útgerð.
Gistingu er að fá á Hótel Dagsbrún og svefnpokapláss í skíðaskálanum. Kántrýbær rekur veitingasölu. Skíðalyfta er í Spákonufelli. Sundlaug er á Skagaströnd og golfvöllur rétt við bæinn.

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is