Back to Homepage

English

transp.gif (848 bytes)
Aftur á aðalvalmynd fyrir Reykjanes

Garður - Á staðnum
Garður - Kort

Sólarlagið í Garðinum

Þeir sem reynt hafa segja að óvíða munu betri skilyrði til þess að skynja víðáttu hafsins en á Garðskagatá, þessum mjóa tanga, þar sem annars vegar er Faxaflói en hinum megin sjálft Atlandshafið. Hér er berangur, engin hæð skýlir, útsýni er víðfemt og fagurt. Gamli vitinn á Garðskagatá var reistur 1897 og er því rúmlega hundrað ára.

Garðurinn er eitt af fáum sveitarfélögum sem státar af gömlum vitum.Gamli vitinn hefur þjónað fleirum en sjófarendum því í honum hafa fuglaskoðunarmenn haft afdrep árum saman. Á vorin koma farfuglar í tugþúsundatali og setjast á tún vestan og sunnan við kauptúnið og hvílast þar í nokkra daga áður en þeir dreifast um land allt.

Garðskagaviti Hin gjöfulu fiskimið rétt utan við ströndina eru undirstaða byggðarinnar og fyrr á öldum eru dæmi um að skipin sem gerð voru út úr Útskálasókn hafi verið á annað hundrað. Þá kemur mörgum á óvart að einmitt hér við Útskála skuli finnast gleggstu ummerki akuryrkju á Íslandi þar sem hinn ævaforni vörslugarður er. Af honum ber sveitarfélagið nafn sitt Garður.

Ferðamenn sem njóta útiveru hafa vissulega til þess tækifærin komi þeir í heimsókn hingað, sem áður sagði er útsýnið fagurt og vítt, þá er fuglaskoðunn óvíða betri, einnig má nefna golfvöllinn í Leiru sem mun vera meðal bestu valla landsins. Við vitana er gott og skemmtilegt tjaldstæði og í Garði eru veitingahús, tjaldsvæði og öll almenn ferðaþjónusta.Verið velkomin hingað og vonandi njótið þið vel.


transp.gif (848 bytes)
Where your travel begins !

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is