Back to Homepage

English

Voga Vefurinn

Val
Aftur á aðalvalmynd fyrir Reykjanes

Vogar - Á staðnum
Vogar - Kort

Vogar á Vatnsleysuströnd

Vatnsleysustrandarhreppur tengir byggðirnar á höfuðborgarsvæðinu við byggðirnar á Reykjanesinu. Strandlengjan í hreppnum er um 30 km löng. Vatnsleysustrandarvegurinn, um 12 km langur, merktur þjóðvegur 421, liggur í hreppnum, hann er lagður bundnu slitlagi og tilvalinn fyrir þá sem velja vilja minni og hægari umferð en ef ekið er eftir Reykjanesbraut.
Náttúrunnendum er sérstaklega bent á Vatnsleysustrandarveginn því í Vogum eru fallegar tjarnir og klettar og töluvert um fuglalíf. Vogastapi, Vogatjörn, Kálfatjarnarkirkja Kálfatjarnarkirkja og Staðarborg eru meðal þess sem ferðamönnum er ráðlagt að skoða.
Þeim, sem vilja dvalja lengur en daglangt og njóta af því sem náttúran, fyrirtæki og hreppurinn hafa að bjóða, er bent á að í Vogum er ný og glæsileg sundlaug með heitum pottum, gufuböðum ofl. Við sundlaugina er tjaldstæðið í sléttri og fallegri laut.

Það er því eitt og annað áhugavert fyrir þann sem óskar að sækja okkur heim og bjóðum við gesti okkar velkomna og vonum að þeir njóti af því sem við og byggðin okkar höfum upp á að bjóða.

Haust í Vogunum

 

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is

Val
Right_Banner.gif (1812 bytes)