|
 Mannlíf í
Grindarvík hefur fremur öðru einkennst af baráttunni við hafið, margar sögur eru
þar um samanber bók séra Gísla Brynjólfssonar, Mannfólk mikilla sæva. Í dag er
Grindavík einn öflugasti útgerðarstaður landsins, hér hefur mikil gróska verið
einkennandi síðustu áratugi. Fram á þessa öld voru landbúnaður og fiskveiðar
stundaðar jöfnum höndum en nú hafa þau umskipti orðið að hefðbundin landbúnaður
er horfinn en iðnaður og þjónusta komið í staðinn.
Saga Grindavíkur er viðburðarík og sviptingamikil
samanber Tyrkjaránið 1627 -en þó einkum á 15. og 16 öld meðan hörðust var
samkeppni Englendinga og þýskra Hansakaupmanna. Þótt sjávarsókn sé brauðfæði í
Grindarvík er ferðaþjónusta mjög áberandi og ört vaxandi. Fjöldi veitingahúsa og
nokkur gistihús eru í Grindarvík og gott tjaldstæði.
Hitaveita Suðurnesja eitt
fullkomnasta orkuver landsins er í landi Grindavíkur. Í tengslum þar við hefur á
síðustu árum risið einn öflugasti þjónustustaður ferðamanna í landinu Bláa
Lónið. Grindavík hefur auk þess upp á fjölmargt annað að bjóða fyrir ferðamenn.
Göngufólk mun vissulega finna leiðir við hæfi hvort heldur gengið er á fjöll eða
á láglendi.
Suðurströndin er lítt kunnur undraheimur, þar verður samspil tóna og lita
stórfenglegt.
Eldfjöll, hraun, leirhverir og vatnshverir eru víða og
víst að þeir sem áhuga hafa á jarðfræði skortir ekki rannsóknar og athugunarefni
á svæðinu. Verið velkomin til Grindavíkur og njótið vel þess sem staðurinn og
fyrirtæki í honum hafa að bjóða.

Please
mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-1999 NORAD ehf. |
|