Back to Homepage

English


Aftur á aðalvalmynd fyrir Reykjanes

Reykjanesbær - Á staðnum
Reykjanesbær - Kort


Keflavík og Njarðvík

NjarðvíkÞegar farið er um Keflavík og Njarðvík eru margir skemmtilegir staðir að skoða.  Má benda á kirkjurnar, sérstaklega Innri Njarðvíkurkirkju sem er steinkirkja.  Minnismerki þar rétt hjá um þá miklu skólamenn Jón Þorláksson og Sveinbjörn Egilsson.  Stekkjakot er við Fitjar, á leiðinni frá Innri Njarðvík til Ytri Njarðvíkur. Stekkjarkot er þurrabúð sem sögur fara af frá miðri 19. öld og var endurbyggt á 50 ára afmæli Njarðvíkurkaupstaðar.  Þar er tekið á móti gestum og bornar fram veitingar fyrir minni hópa ef óskað er.

Í Keflavík og Njarðvík er fjöldi kaffihúsa og veitingastaða. Hótel í besta flokki, svefnpokapláss, heimagisting og tjaldsvæði.  SkemmtisiglingHægt er að fara í sjóstangaveiði eða skemmtisiglingu með það fyrir augum að skoða fuglalífið á sjónum og leita að hvölum.  Útivistarsvæði er á Berginu í Keflavík.  Þar hefur verið lögð skemmtileg gönguleið meðfram sjónum sem auðvelt er að fylgja um Bergið.

Frá Fitjum í Njarðvík liggur forna þjóðleiðin Skipsstígur til Grindavíkur.  Vörður hafa fallið á fyrrihluta leiðarinnar en eru mjög greinilegar frá Stapðafelli til Grindavíkur og Húsatófta (Árnastígur).  Áætlaður göngutími er u.þ.b. 5 klst.

 Hafnir

Bæjarrústir við HafnirHafnir sunnan Ósabotna, var mikill útgerðarstaður hér áður fyrr.  Hér er ferðaþjónusta að hasla sér völl.  Þar er nú eina sjófiskasafnið á fastalandinu – mjög áhugavert safn.  Útbúin sem sérstök verkefni fyrir skólaheimsóknir fyrir börnin að spreyta sig á.  Þar eru einnig framreiddar veitingar fyrir hópa.  Kirkjan í Höfnum er byggð 1861 og er jafnan hægt að fá að skoða hana.  Við Reykjanesveginn í Höfnum taka menn eftir akkeri miklu landmeginn vegarins  við björgunarstöðina.  Akkerið er af skipinu Jamestown sem rak mannlaust upp í Ósabotna 1870.

Frá Kalmannstjörn, sunnarlega í Hafnarbyggðinni, er upphaf af Prestastíg, fornri þjóðleið frá Höfnum í Staðarhverfi.

HafnabergSunnan Hafna tekur við Hafnaberg.  Göngustígur liggur frá bílastæði við veginn að besta fuglaskoðunarstaðnum á berginu.  Það er u.þ.b. 35 – 45 mín. Gangur niður á bergið.  Hafnaberg er gósenland fuglaskoðarans.  Mjög auðvelt er að fylgjast með hinum fjölmörgu fuglum sem sitja í berginu þar sem það er mjög vogskorið.  Rétt er að gefa sér góðan tíma til þessarar ferðar. 

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is

transp.gif (848 bytes)