Velkomin í Sandgerði
Sandgerði
hefur öldum saman verið þekkt sem útgerðarstaður og eru nú gerðir út þaðan
hátt í 200 bátar. Kaupstaðarréttindi fékk sveitarfélagið árið 1990 og búa nú
rúmlega 1300 manns í Sandgerði. Nafn sitt dregur byggðin af reisulegu húsi,
Sandgerði, sem blasir við þegar ekið er inn í bæinn.
Básendar í Sandgerði voru fyrr á öldum einn
mikilvægasti verslunarstaður hérlendis, því olli skreiðarverslunin og er frásögn
Halldórs Laxness í Íslandsklukkunni er Jón Marteinsson sýnir Jóni Hreggviðssyni
Kaupmannahöfn glögg heimild þar um. Básendar-Stafnes og Hvalsnes eru fornir
merkisstaðir í Sandgerði. Hvalsnes var fyrrum prestssetur og þar stendur fögur kirkja
reist úr tilhöggnum steini. Sr. Hallgrímur Pétursson sálmaskáld var prestur á
Hvalsnesi.
Sjómannastofan Vitinn í Sandgerði er ein fárra slíkra
á landinu og tilvalið fyrir gesti að skoða hana, þá má einnig benda á
Fræðasetrið þar sem gestir geta kynnt sér fugla, fjörur og lífið í sjónum á
einstakan hátt. Þá eru hér fyrirtæki sem bjóða sjóstangaveiði, hvala- og
hrefnuskoðun og siglingu út í Eldey.
Sem þú sérð lesandi góður þá býðst margt hér í
Sandgerði og von okkar að þú njótir vel Velkomin í Sandgerði.
Please
mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is |
|