Back to Homepage

 

Travelnet.is

transp.gif (848 bytes)
Suðurland

Á staðnum

Velkomin til Hellu

Hella er á austurbakka Rangár. Íbúarnir byggja afkomu sína á þjónustu við sveitina og í auknum mæli við ferðamenn. Kennileiti sveitarinnar er ugglaust Hekla frægast eldfjalla á Íslandi sem laðar marga ferðamenn til sín. Þá má segja að í sveitinni séu fjölförnustu ferðamannastaðir landsins Þórsmörk og Landmannalaugar og milli þeirra hinn rómaði "Laugavegur" sem laðar til sín marga göngumenn árlega. Sveitin í kring er eitt mesta hestasvæði landsins.
Á Hellu hefur undanfarin ár aukist framboð á þjónustu við ferðamenn. Þar er til dæmis hægt að leigja "heilt þorp" undir hvers kyns mannfagnaði ættarmótt sem annað. Góð sundlaug er á Hellu og stutt í 18 holu golfvöll, þá eru seld veiðileyfi í Rangárnar, en þær eru orðnar meðal eftirsóttustu veiðiáa á landinu.

 

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is