|
Velkomin til
Hvolsvallar
Hvolsvöllur er á fallegum stað með mikið
útsýni yfir Suðurland. Þjónustumiðstöð
Hvolhrepps. Byggðin hófst er Kaupfélag Hallgeirseyjar stofnaði þar
útibú árið 1930. Afkoma íbúanna byggist að mestu á iðnaði,
verslun og þjónustu við nágranna byggðarlögin.
Þjónusta við ferðamenn er góð. Hótel
er á Hvolsvelli, tjaldsvæði við Austurveg. Handverk í heimabyggð í
Sæluverinu og upplýsingaþjónusta fyrir ferðamenn í sælubúinu Hlíðarenda.
Góður golfvöllur er rétt vestan við Hvolsvöll, mini golf á svæðinu,
reiðhjólaleiga og lax- og silungsveiðileyfi seld hja Sælubúinu og
ýmislegt fleira er þar á seiði.
|
Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is |
|