Velkomin til
Árborgar - Selfoss
Selfoss er miðstöð verslunar og þjónustu á
Suðurlandi. Selfoss varð sérstakt bæjarfélag 1947 og heldur því upp á 50 ára
afmæli sitt á þessu ári ,af því tilefni er sérstök afmælisdagskrá í
sumar.Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi er starfræktur í samvinnu sveitarfélaga
á Suðurlandi . Bæjar- og héraðsbókasafn Árnesinga er á Selfossi. Lista- og
dýrasafn Árnesinga hefur aðsetur á staðnum. Góð íþróttaaðstaða er á Selfossi.
Íþróttahús er við Sólvallaskóla og sunnan Engjavegar er víðáttumikið
útivistarsvæði með íþróttavöllum. Þar er einnig risin myndarleg gistihúsabyggð,
auk þess sem tjaldsvæði Selfoss er rekið í tenglsum við hana. Aðsókn ferðamanna
á tjaldsvæðið hefur aukist stöðugt hin síðari ár. Við Svarfhól skammt austan
Selfoss er glæsilegur 9 holur golfvöllur á bökkum Ölfusár. Tilvalið er að fara
gönguferðir með ánni. Einnig er Ingólfsfjall kjörið uppgöngu og sést þaðan vel
yfir sléttur Suðurlands, fjallahringinn í norðri og austri, og til Vestmannaeyja í
suðri. Selfoss er samgöngumiðstöð Suðurlands. Þjóðvegur nr.1, eða hringvegurinn
sem svo er nefndur, liggur í gegnum bæinn og fara því margir ferðamenn þar um. Frá
Selfossi liggja vegir í allar áttir. Áætlunarferðir eru frá Selfossi til allra
átta. Má þar nefna að Gullfossi og Geysi, í Þórsmörk og Landmannalaugar, til
Akureyrar og austur á land og niður að ströndinni til Stokkseyrar, Eyrarbakka og
Þorlákshafnar. Aðgengilegar verslanir fyrir ferðamenn eru á Selfossi. Þar er einnig
starfrækt hótel, ásamt gistiheimilum auk áður nefndrar gistihúsabyggðar við
tjaldsvæðið og svefnpokagistingar í Sólvallaskóla á sumrin.Í sumar var tekin í
notkun nýtt og glæsilegt útivistarsvæði við Sundhöll Selfoss þar má finna
barnalaug, rennibraut, leiktæki ýmiss konar, eimgufubað við laugarbakkann og heita
potta.
Ferðaþjónusta er einn aðalatvinnuvegur staðarins og víst að ferðalangur verður
ekki svikinn af heimsókn til Selfoss.
Heimasíða Selfoss er á slóðinni: http://www.selfoss.is
Karl Björnsson
bæjarstjóri
heimasíða
Please
mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is |
|

 |