Back to Homepage

transp.gif (848 bytes)Suðurland

Á staðnum

Velkomin til Þorlákshafnar

To Herjolfur Ferry InfoPage

Ölfus er vestasta sveitafélag Árnessýslu. Sveitin er rómuð fyrir fegurð og frjósemi. 

Þorlákshöfn er kauptún sveitarfélagsins,  hefur verið þekkt fyrir að vera besta verstöð suðurstrandarinnar. Afkoma íbúanna byggist á útgerð og vinnslu sjávarafurða auk iðnaðar og þjónustu. Þjónusta við ferðamenn er öll hin ágætasta. Góð útisundlaug er á staðnum, búin heitum pottum,gufubaði og nýrri og glæsilegri vatnsrennibraut. Við sundlaugina er gott tjaldstæði með innieldunaraðstöðu og svæði fyrir húsbíla.

Frá sundlauginni eru margar góðar gönguleiðir um bæinn og næsta nágrenni og lengri leiðir meðfram ströndinni. Hægt er að ganga með ströndinni út í Selvog og Herdísarvík og eftir sandströndinni að Óseyrarbrú og Eyrarbakka.

Í bóka- og minjasafninu Egilsbúð má sjá muni sem tengjast uppbyggingu staðarins.

Kirkjan í Þorlákshöfn hefur sérstakan byggingarstíl.Strandarkirkja í Engilsvík í Selvogi er löngu þjóðfræg vegna almennra áheita. Þeir sem vilja fara í hellnaferð geta farið í Raufarhólshelli sem er 1360 metra langur en fara skal með gát þar um.

Duggan í Þorlákshöfn eða Skíðaskálinn í Hveradölum veita ferðamönnum margvíslega þjónustu einkum í mat og drykk.

Ferðamenn sem koma í Ölfus hafa úr mörgu að velja til dægrardvalar og er það von okkar að þeir njóti vel.

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is