


|
Velkomin til Bolungarvíkur
Ágæti
lesandi hér sérð þú fyrsta vísinn af ýmsum fróðleik um Bolungarvík á
Ferðanetinu sem vonandi verður til þess að vekja áhuga þinn á að koma hingað og
dvelja hjá okkur til lengri eða skemmri tíma. Þegar fram líða stundir bætist
frekara efni við kynningu okkar á veraldarvefnum sem varðar sögu okkar og menningu.
Bolungarvík á sér langa og merkilega sögu, staðurinn er ein elsta verstöð landsins
því hún er ein fárra verstöðva á landinu sem getið er í fornritum. Fyrr á öldum
var Bolungarvík mesta verstöð á Vestfjörðum og um síðustu aldamót sú stærsta á
landinu. Héðan var fyrsti vélknúni fiskibáturinn gerður út. Við erum vissulega
stolt af sögu staðarins og varðveitum hana eins og þeir geta séð sem heimsækja
Ósvör gömlu verbúðina sem við höfum lagfært.
Bolungarvík nútímans byggir sem fyrr á sjávarútvegi en við sem vinnum að velferð
byggðarinnar gerum hvað við getum til þess að bjóða íbúum hennar og gestum upp á
þá þjónustu sem aðrir landsmenn fá notið í sinni heimabyggð.
Ferðamaður sem sækir okkur heim fær hjá okkur góða þjónustu, við höfum gisti-
og veitingaraðstöðu, sundlaug, golfvöll og skíðaaðstöðu, heilsu- og löggæslu
svo fátt eitt sé nefnt.Náttúran er hér svipmikil og þeir sem hafa unun af því að
ganga og njóta kyrrðar og útsýnis geta svo sannarlega gert það hér.
Leiðin til okkar var og er umtöluð en síðustu ár hefur mikið verið gert til þess
að bæta öryggi vegfaranda. En hvað sem öllu líður þá er sjón sögu ríkari og
reynslan ólignust við íbúar í Bolungarvík bjóðum gesti velkomna og að þeir megi
njóta þess sem við og staðurinn bjóðum.i
|
|