Travelnet.is - Aðalsíða

english

Vefur Ísafjarðarbæjar

transp.gif (848 bytes)
Aðalsíða fyrir Vestfirði

Ísafjörður - Upplýsingar á staðnum
Ísafjörður - Kortasíða

 

 The Landmat Website

 

 

Séð yfir Eyrina út Skutulsfjörð yfir á SnæfjallaströndÍsafjörður er langfjölmennasti kaupstaður Vestfjarða - réttnefndur höfuðstaður fjórðungsins. Bærinn stendur við Skutulsfjörð sem er girtur háum og bröttum fjöllum á báðar hliðar. Eyrarfjall heitir fjallið að vestan en Ernir og Kirkjubólsfjall að austan. Fyrir botni fjarðarins er sérkennilegt fell sem heitir Kubbi. Elsti hluti kaupstaðarins stendur á eyri sem gengur fram undir Eyrarfjalli. Nýrri byggð teygir sig upp í fjallsrætur og inn með hlíðum Eyrarfjalls. Nýjasta bæjarhverfið er í fjarðarbotninum í mynni Dagverðardals.

Ísafjörður á sér langa sögu. Upprunalega hét staðurinn Eyri við Skutulsfjörð, en hlaut síðar nafnið Ísafjörður. Árið 1786 fékk Ísafjörður kaupstaðaréttindi. Í Landnámu segir að Helgi Hrólfsson hafi numið land í Skutulsfirði og búið þar. Sagan segir að hann hafi fundið skutul rekinn í flæðarmálinu og nefnt fjörðinn eftir honum.


Eftir miðja 16. öld komu kaupmenn frá Hamborg sér upp aðstöðu á Skutulsfjarðareyri sem varð með tímanum helsti verslunarstaður á Vestfjörðum. Þegar einokun komst á var höfnin á Skutulsfjarðareyri gerð að verslunarstað Dana þar sem verslað var með fisk. Verslunarumdæmi Ísafjarðar var það næstfjölmennasta á Vestfjörðum með 1403 íbúa á svæði sem náði alla strandlengjuna frá Þaralátursfirði í norðri að Súgandafirði í suðri. Á Ísafirði er ein besta höfn landsins frá náttúrunnar hendi, enda hefur sjávarútvegur alla tíð verið einn aðalatvinnuvegur Ísfirðinga.

Frá SeljalandsdalÍ Neðstakaupstað á Ísafirði er varðveitt heillegasta húsaþyrpingin frá 18. öld hér á landi og er hún friðlýst. Þetta eru byggingar danskra kaupmanna, bæði verslunarhús og íbúðarhús.



Menningarlíf hefur um aldir staðið með miklum blóma á Ísafirði. Bókasafn var stofnað árið 1899 og fyrsti tónlistarskóli landsins árið 1911. Tónlistarskólinn hefur ætíð verið áberandi í bæjarlífinu, en hann stendur fyrir margvíslegum tónleikum ár hvert. Á Ísafirði er íþróttalíf einnig öflugt og þaðan koma iðulega nokkrir af bestu skíðamönnum landsins.

íbúar 2800

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is

ísafjörður
Sparisjóður Önundarfjarðar

Veðurglugginn