Velkomin til
Suðureyrar
Suðureyri stendur við vestanverðan Súgandafjörð á samnefndri eyri, undir fjallinu Spilli. Há og brött fjöll umlykja fjörðinn, Sauðanes að sunnan og Göltur að norðan. Fjöllin eru víða vel gróin og er Selárskógur innan Selárdals eitt stærsta samfellda kjarrlendi á Vestfjörðum.
Utan Spillis og upp af fjarðarkjaftinum að sunnanverðu, gengur inn allmikill dalur er heitir Staðardalur fremst, en greinist svo í Vatnsdal og Sunndal. Á dalamótunum stendur kirkjustaðurinn Staður, en þangað eiga Súgfirðingar kirkjusókn og legstað. Dalurinn og afdalirnir eru allvel grónir og umhverfið tilkomumikið. Vestan dalsins gengur fram Sauðanes og þar á fremst er viti.
Suðureyri varð löggiltur verslunarstaður 1899, en um síðustu aldamót voru íbúðarhúsin á staðnum aðeins tvö. Fólki fjölgaði þó fljótlega. Löggilt höfn var á Suðureyri og Ásgeirsverslun á Ísafirði reisti þar salthús og kom sér upp verslunarútibúi. Fyrsti vélbáturinn kom árið 1906 og fimm árum síðar var íbúatalan komin í 200. Þar eru nú á fjórða hundrað íbúar.
Í Botnsdal, sem gengur upp af fjarðarbotninum, var áður unnin surtarbrandur en surtarbrandslög eru víða í firðinum og steingervingar af amerískri eik hafa fundist þar.
Á Suðureyri er minnisvarði um Magnús Hj. Magnússon (skáldið á Þröm) sem lést árið 1916. Hann var allt í senn, fátæklingur, tukthúslimur, skáld og barnakennari, og er fyrirmynd að Ólafi ljósvíkingi í bókinni Heimsljós eftir Halldór Laxnes. Brot úr dagbókum Magnúsar og skrifum hafa nýlega verið gefin út í bókinni Kraftbirtingarhljómur Guðdómsins.
Please
mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is |
|

|