|
Velkomin
til Akraness. Akranes er vaxandi bæjarfélag á Vesturlandi.
Hér er mikil gróska jafnt í atvinnulífi sem mannlífi. Frá upphafi
hefur sjávarútvegur verið í öndvegi atvinnulífsins, hin síðari
ár hefur iðnaður og þjónusta farið vaxandi og tekið til sín sífellt
stærri hlut af vinnuafli Akurnesinga.
Á Akranesi býðst almenn þjónusta eins og hún best verður hér er
menntamiðstöð Vesturlands, sjúkrahús, lögregla, góðar verslanir
fyrirmyndar íþróttaaðstaða ofl.
Akranes er vel í sveit sett fyrir þá sem vilja ferðast um Snæfellsnes
og Borgarfjarðarhérað, Hvalfjarðargöng færa Akranes í alfaraleið.
Ferðamenn fá góða Þjónustu á Akranesi hér er upplýsingamiðstöð,
fjölbreytt gisti- og veitingaaðstaða, afþreying margvísleg. Byggðasafnið
að Görðum nýtur æ meiri vinsælda ferðamanna og þeir sem kjósa
útivist geta gengið um fjöruna á Langasandi, farið skipulagðar
gönguleiðir í bænum, gengið á Akrafjall og notið útsýnisins,golfvöllur
er rétt við byggðina, góð aðstaða er fyrir hestamenn.
Þegar að er gáð, býður Akranes upp á margt sem ekki verður fundið
annars staðar og okkur er sérstök ánægja að bjóða gestum að njóta
þess með okkur.

|
Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is |
|
|