|
|
Velkomin til Borgarbyggðar Borgarbyggð varð til árið 1994 við sameiningu Hraunhrepps, Stafholtstungna, Norðurárdals og Borgarnes. Í ár bætast við Borgarhreppur, Þverárhlíðarhreppur og Álftanesshreppur. Sveitarfélagið er miðstöð stjórnsýslu í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu,hér er rekinn talsverður iðnaður, bæði vinnsla landbúnaðarafurða sem og byggingariðnaður. Borgarbyggð og þá sérstaklega Borgarnes verður æ þýðingarmeiri sem þjónustumiðstöð ferðamanna sem heimsækja Mýra- og Borgarfjarðarsýslur. Hér er í boði öll almenn þjónusta svo sem banka- póst- lögreglu- og heilbrigðisþjónusta. Mikil uppbygging á sviði
ferðaþjónustu hefur átt sér stað síðustu ár í Borgarnesi og
víðar í Borgarbyggð. Í Borgarnesi er stórt hótel með góðri
aðstöðu til ráðstefnuhalds. Þá er í Borgarnesi innisundlaug, ný
útisundlaug með gufubaði, eimbaði og heitum pottum. Aðstaða til
frjálsíþróttaiðkunnar er frábær sem og góður knattspyrnuvöllur.
Borgarnes er því kjörinn staður fyrir einstaklinga og hópa sem þurfa
að komast í æfingabúðir. Veitingaaðstaða er margvísleg og ýmist
skemmtun og uppákomur í gangi ef ekki í Borgarnesi þá í
félagsheimilum á svæðinu.Góður golfvöllur er rétt utan við
Borgarnes. Við bjóðum gesti okkar velkomna til Borgarbyggðar. Vonum að þeir eigi ánægjulegar stundir með okkur hér í Borgarbyggð.
|
|
|
Please mail to webmaster@travelnet.is |