|
Velkomin
til Grundarfjarðar
Grundarfjörður er kauptún í
Eyrarsveit, fyrir botni Grundarfjarðar. Siglingar munu hafa verið frá
fornu fari enda besta höfn á Snæfellsnesi frá náttúrunnar hendi og
verslun hófst þar snemma. Grundarfjörður hlaut kaupstaðaréttindi
árið sem verslunin var gefin frjáls 1787, þó svo að ekki varð
neitt þéttbýli að ráði strax.
Um aldamótin 1800 fengu
Frakkar aðsetur í Grundarfirði og byggðu sér meðal annars
sjúkraskýli og kirkju en tóku þó uppaðstöðu sína um 1860.
1836 voru kaupstaðarréttindin
tekin af Grundarfirði en staðurinn löggiltur sem verslunarstaður
áfram. Árið 1897 var verslunarstaðurinn fluttur í Grafarnes,
líklega af hvötum Norðmanna, sem hugsuðu sér gott til glóðarinnar
með hvalveiðum. Af því varð nú ekki en verslunarstaðurinn var
kjurr.
Þótt verslunarstaðurinn
væri fluttur 1897 var fyrsta húsið ekki byggt fyrr en 1906, svokallað
Neshús. Raunveruleg þéttbýlismyndun hófst ekki í Grundarfirði fyrr
en um 1940 en þá var byrjað á hafnarbótum með því að lengja
bryggju er þar var. Á þessum árum var einnig hafinn undirbúningur
að Hraðfrystihúsi Grundarfjarðar hf. en það var stofnað 1941 og
var hver verkfær maður í sveitinni með eitthvert hlutafé. 1962 var
Kaupfélag Grundarfjarðar stofnað og tók það við eigum Kaupfélags
Stykkishólms er var þar fyrir með eignir. Hefur fólki fjölgað jafnt
og þétt síðan, með vaxandi útgerð.
Árið 1965 var ákveðið með
almennri atkvæðagreiðslu í Eyrarsveitað að festa nafnið
Grundarfjörð við staðinn. Kirkja var vígð þar 1966 en hafði
prestur setið þar frá 1963. Þar er einnig heilsugæslustöð,
samkomuhús er var reist á árunum 1945-1950, landsímastöð hefur
verið frá 1944 auk þess allmikið félagslíf sem samanstendur af
flölmörgum hreyfingum og klúbbum.
|
Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is |
|