Velkomin til
Snæfellsbæjar
Snæfellsbær er ungt sveitarfélag, myndað við sameiningu
Staðarsveitar, Breiðavíkur, Neshrepps utan ennis, Hellissands og Ólafsvíkur.
Snæfellsjökull er óneitanlega helsta einkenni byggðarinnar.
Sveitarfélagið geymir óteljandi náttúruperlur til
sjávar sem sveitar. Ströndin er margbreytileg. Þar eru langar, mjúkar sandfjörur,
stórkostlegar klettamyndanir, hellar og fuglabjörg. Fjöllin ögra göngumanninum af
þeim er fagurt um að litast. Sjávarplássin við ströndina með fjölskrúðugt
mannlíf í tengslum við íslenska sögu vekja áhuga ferðamannsins.
Þjónusta við ferðamenn er mikilvæg atvinnugrein enda
margt í boði. Hægt er að velja um margs konar gistingu frá tjaldsvæðum og
svefnpokagistingu til bestu hótela. Matargerðarlist er í hávegum enda óvíða betra
hráefni að fá.
Samgöngur hingað sem innan svæðisins eru góðar.
Reglulegar ferðir eru með áætlunarbílum. Góður flugvöllur er á Rifi.
Héðan bjóðast margvíslegir kostir til ferðalaga. Í
boði eru bátsferðir og siglingar svo sem hvalaskoðunarferðir. Á landi eru lengri og
styttri ferðir í boði. Þar má velja skipulega hópferð eða fara á eigin vegum um
merktar leiðir akaandi, hjólandi, gangandi eða á hestbaki. Allir geta fundið þar
eitthvað við sitt hæfi.
Dægradvöl og afþreying er margvísleg, Í boði er
veiði í ám og vötnum eða á sjóstöng. Grasaferðir, gönguferðir jöklaferðir er
meðal þess sem í vali er. Hestaleigur, snjósleðaleigur, golfvöllur sundlaug og
íþróttasvæði allt eftir þörfum hvers og eins til útivistar. Fyrir þá sem skoða
vilja menningar- og söguminjar má benda á byggða- og sjóminjasöfnin á Hellissandi
og í Ólafsvík.
Við bjóðum þig velkomin til okkar og megir þú njóta
dvalarinnar sem best.
|
Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-1999
NORAD ehf. |
|