Back to Homepage

English

Velkomin á vef Stykkishólmsbæjar

transp.gif (848 bytes)

Á leið um landið - Aðalvalmynd
Vesturland - Aðalvalmynd

Stykkishólmur - Á staðnum
Stykkishólmur - Kort

 

Á undanförnum árum hefur verið kappkostað að byggja upp góða þjónustu í Stykkishólmi fyrir bæjarbúa og þá sem sækja þjónustu til bæjarins úr næsta nágrenni og einnig þá fjölmörgu ferðamenn sem kjósa að sækja staðinn heim. 

Stykkishólmur er og hefur verið samgöngumiðstöð jafnfram því að vera sjávarútvegs- og þjónustubær. Allt skipulag og uppbygging miðast við að þjóna þessu hlutverki um leið og íbuunum eru sköpuð sem best skilyrði til starfa og búsetu. Atvinnulíf í Stykkishólmi er fjölbreytt miðað við hefðbundna skiptingu ársverka í sjávarbyggðum. Áhersla er lögð á að treysta atvinnureksturinn og leggja grunn að fjölbreyttri atvinnustarfsemi.

Ferðafólk getur gengið að allri almennri þjónustu vísri hjá fyrirtækjum og stofnunum í Stykkishólmi og innan seilingar eru frægir sögustaðir og náttúruminjar í Helgafellssveit þar sem starfræktar eru meðal annars hestaleigur, bændagisting og athyglisverð hákarlaverkun sem notið hefur vinsælda meðal ferðafólks.

Aðstaða til íþróttaiðkana er góð í Stykkishólmi. Þar er stór íþróttamiðstöð og glæsileg ný sundlaug með næst lengstu vatnsrennibraut á Íslandi. Tveir heitir pottar með heilsuvatni úr borholu Hitaveitu Stykkishólms ásamt vaðlaug eru við sundlaugina.  Auk knattspyrnu- og frjálsíþróttavallarins eru á lóð Grunnskólans malbikaðir körfuboltavellir sem eru opnir öllum. Ágætur 9 holu völlur Golfklúbbsins Mostra er sunnan við Hótel Stykkishólm og er klúbbhúsið í hótelinu. 

Gömul hús setja sterkan svip á miðbæinn og í því elsta, Norska húsinu, er Byggðasafn Snæfellinga. Þar eru oft sérstakar sýningar á vegum safnsins eða listamanna. Fjölmargt handverksfólk er í Stykkishólmi og má benda á Gallerí Láru við Aðalgötu og Verslunina Settu í Egilshúsi þar sem kaupa má ýmsa handunna muni. Nýja kirkjan á Borginni er áberandi kennileiti af sjó og landi. Hún er opin ferðamönnum og auk venjulegs helgihalds eru þar haldnir tónleikar a.m.k. hálfsmánaðarlega yfir sumarið.

 "Danskir dagar" eru haldnir í ágúst ár hvert og þá gera bæjarbúar og gestir þeirra sér glaðan dag með dansi, söng og ýmsum listviðburðum.

 

transp.gif (848 bytes)

Á Leið um Landið | Vesturland  | Stykkishólmur  - Á staðnum | Stykkishólmur - Kort

 

Please mail to webmaster@travelnet.is
if you have any comments or questions about this website.
Copyright 1997-2003 Travelnet.is