Afþreying

Framboð á afþreyingu eykst stöðugt, bæði hvað varðar tegund og fjölda. Veiði, snjósleðaferðir, skipulagðar gönguferðir, fuglaskoðun, hvalaskoðun, golf svo fátt eitt sé nefnt er nú hluti þess sem ferðamanninum býðst.

Þá erum við líka að vakna til vitundar um að það má eiga verulega góðar stundir á Íslandi, hvort sem heldur er að vetri eða sumri. Nú er fjölbreytt afþreyingh i boði, sumar vetur, vor og haust.

Samfara auknu framboði til afþreyingar eykst álagið á landið og líkur þess að illa verði farið með náttúruna. Við hvetjum fólk til þess að hafa það hugfast að íslensk náttúra er einstök og hún verður það ekki áfram nema að við virðum hana og umgöngumst hana vel.

Á þessum kafla Ferðanetsins eru margir þjónustuaðilar sem keypt hafa Þjónustusíðu hjá netinu. Þessir aðilar eru merktir gulu og ef klikkað er á gulu boxin þá opnast þeirra síða. Hvetjum við þig til þess að klikka á guluboxinn og fræðast um það sem í boði er.