Fuglaskoðun
Stundum er sagt að Ísland sé paradís fuglaskoðunnarmannsins. Bæði er að tiltölulega auðvelt er að komast að fuglunum sem skoða á sem og að kostnaðurinn er ekki mikill miðað við sumstaðar erlendis. Staðir sem Snæfellsnes, Mývatn, Látrabjarg, Hornstrandir eru þekktir staðir fuglaunnenda.
Í nágrenni Reykjavíkur, eru Reykjanesið og Vestmannaeyjar, einnig þekktir fuglaskoðunar staðir. Frekari upplýsingar um fuglaskoðunarferðir er að fá á Upplýsingamiðstöðum ferðamála. Talið er að 241 tegundir fugla hafi sést hérlendis. Af þessum eru 72 sem verpa hér að staðaldri, 6 tegundir sem eiga leið hér um á leið sinni til varplanda, aðrar tegundir hafa einhvern tíma sést hér en þá ekki sem fastagestir. Sjófuglar eru algengastir. Mývatn er frægt fyrir að þar verpa fleiri andategundir á einum stað en annars staðar í veröldinni 16 tegundir.