Gönguferðir

Fátt er jafn gefandi og fá sér góða gönguferð. Hérelndis eru möguleikarnir nær óteljandi.
Ferðafélög leggja mikið upp úr skipulögðum gönguferðum fyrir hópa allt árið. Hin síðari ár hefur fjöldi leiðsögumanna bæst í hóp þeirra sem fyrir voru og þá aðallega í dreifbýli sem aftur hefur orðið til þess að nú gefst fólki kostur á að fara gangandi um einstök svæði undir góðri leiðsögn og fræðast þannig um landið og sögu þess betur en annars er kostur.