Hestamennska

Öldum saman var íslenski hesturinn þarfasti þjónninn. Í dag veitir hann okkur og erlendum gestum okkar ómælda ánægju bæði til dægrardvalar sem og til þess að njóta landsins og upplifa það á nýjan hátt. 

Þá má ekki gleyma því að hesturinn er að verða mikilvæg útflutningsvara sem kemur til af því hve kostir hans eru metnir mikils, kostir eins og lyndiseinkunn og gangur. 

Fjöldi hestaleiga er um allt land og úrval ferða og hesta mikið. Á vefnum okkar er allra getið en þeir sem hafa kosið að kynna starfsemi sína sérstaklega hafa eigin þjónustusíðu þeir eru auðkennduir með gulum boxum. Þú smellir á gula boxið og færð ítarlegri upplýsingar um viðkomandi.