Allar nánari upplýsingar á
www.strengir.is
Allar nánari upplýsingar á
www.strengir.is
Veiðiþjónustan Strengir
Smárarima 30
P.O. Box 12024 - 132 Reykjavík
sími 567 5204 - GSM 893 5590
E-mail: ellidason@strengir.is


Ágæti veiðimaður

Söluskráin fyrir árið 2003 sýnir glöggt að Veiðiþjónustan Strengir er vaxandi fyrirtæki á veiðileyfamarkaðnum með fjölbreytt úrval veiðileyfa fyrir lax-og silungsveiði. Sérstaklega hefur framboð á góðri silungsveiði aukist þar sem gisting og allur aðbúnaður er fyrsta flokks og eru nokkrir góðir valkostir þar.

Það er sérstakt gleðiefni að geta í fyrsta sinn boðið hinn rómaða Tungulæk á almennan veiðileyfamarkað. Einnig er ánægjulegt að veiði er í stöðugri uppsveiflu í Minnivallalæk, Breiðdalsá og Laxá í Nesjum og verður spennandi að fylgjast með framvindunni í þessum veiðiám.

Nú er í byggingu eitt glæsilegasta veiðihús landsins í Breiðdalsá og mun það koma væntanlegum veiðimönnum skemmtilega á óvart, líkt og þeim sem fóru á Seglbúðasvæðið í Grenlæk sumarið 2002. Áttu gestir fá orð til að lýsa aðbúnaði þar og hafa margir bókað aftur þrátt fyrir að veiðin hafi mátt vera meiri í Grenlæk síðastliðið sumar.

Hrútafjarðará var skemmtileg nýjung hjá okkur árið 2002 og veiðin þar á uppleið aftur. Búast má við miklu þegar seiðasleppingar fara að hafa áhrif þar. Þegar hefur mikið verið bókað í Hrútafjarðará fyrir sumarið af fastahollum.

Activities | Accommodation | Car Rentals | Culture | Restaurants
Tours & Transportation | Taxfree Shopping | Sitemap | Home

Please mail to webmaster@travelnet.is if you have any comments or questions about this website. Copyright 1997-2009 Travelnet.is