Aksturs upplýsingarAllir hálendisvegir og margir þjóðvegir eru malarvegir. Þeir verða sífellt fleiri sem ekki hafa æfingu í að aka á malarvegum þar sem vegirnir eru annað hvort holóttir sem getur ef hratt er ekið valdið því að ökumaðurinn missir stjórn á bílnum eða að vegirnir eru ný heflaðir sem veldur því að töluvert er af lausamöl á veginum eða í köntum sem einnig er stór varasamt einkum þeim sem aldrei eða sjaldan aka við þær aðstæður. Látið ekki blekkjast af því þótt einn og einn ökumaður aki hratt. Þá ber að benda á að þótt þjóðvegir séu lagðir slitlagi þá eru sumir aðeins lagðir til hálfs þ.e. eru ekki tvíbreiðir og ber því ökumönnum að víkja með ökutækið að hluta út í malarkant.
Á vetrum ber ætíð að aðgæta veðurútlit og athuga með færð. Upplýsingar um færð er að fá hjá vegag.is eða í síma 563-1500. Munið að hámarkshraði er almennt 50 km /klst í þéttbýli, 80 km/klst á malarvegum en 90 km /klst á vegum með bundnu slitlagi.
Flestir fjallvegir eru opnir frá byrjun Júlí þó getur það dregist, fer eftir því hve fljótt þeir ná að þorna eftir frostlinun.
Þeim sem ætla til fjalla er ráðlagt að ferðast með öðrum bíl eða bílum. Því ef bíllinn bilar, er hætta á að dvelja þurfi fjarri byggð um einhvern tíma.
Góða ferð.
| Meðalopnunartími fjallvega 1991-1994: |
| Lakagígar |
3 Júlí |
- F22 Fjallabaksleið nyrðri:
- Sigalda - Landmannalaugar
Landmannalaugar - Eldgjá Skaftártunga - Eldgjá |
-
- 28 Júní
11 Júlí 18 Júní |
- Fjallabaksleið syðri:
- Keldur - Hvanngil
Fjótshlíð - Hvanngil Hvanngil - Skaftártunga |
-
- 12 Júlí
11 Júlí 14 Júlí |
| Landmannaleið (Dómadalur) |
1 Júlí |
- F37 Kjalvegur:
- Gullfoss - Kerlingarfjöll
Kerlingarfjöll-Blönduvirkjun |
-
- 21 Júní
25 Júní |
| F28 Sprengisandsleið |
5 Júlí |
| F72 Skagafjarðarleið |
20 Júlí |
| F82 Eyjafjarðarleið |
19 Júlí |
| Uxahryggjavegur |
20 Júní |
| F35 Kaldadalsvegur |
30 Júní |
| Öskjuleið to Drekagil |
17 Júní |
| Öskjuleið to Askja |
18 Júní |
| Kverkfjallaleið |
21 Júní |