Gisting

Nær alls staðar á landinu er hægt að fá keypta gistiþjónustu allt árið um kring. Þjónustan er margrar gerðar hótel eru að jafnaði með bestu þjónstuna svo sem með gestamóttöku opna allan sólarhringinn og mest framboð þjónustu. En það er sama hvar borið er niður hótel og hótel og tjaldsvæði og tjaldsvæði samanburður hefur hingað til verið af skornum skammti og neytandinn þess vegna oft í erfiðri stöðu þegar hann ákveður hvert skuli halda og af hverjum eigi að kaupa gistinguna.
Sem betur fer er verið að vinna í gæðaeftirliti á þessu sviði þannig að þeir sem betur standa sig í verði og þjónustu fái umbun árangurs síns í formi aukinnar aðsóknar og ánægðra viðskiptamanna.
Margir gistiþjónustaðilar eru með þjónustusíðu hjá Ferðanetinu þar sem greint er frá því helsta sem í boði er. Þeir aðilar hafa gult box og ef smellt er á það kemur síða þeirra upp. Hvetjum við þig til þess að skoða á bak við gulu boxinn þar færðu frekari upplýsingar.