Hótel Frón
Laugavegi 22a
101 Reykjavík
Sími: 551 4666
Fax : 551 4665

Netfang

Heimasíða

Hótel Frón gisting miðsvæðis í Reykjavík
Hótel Frón er glæsilegt og vinalegt hótel staðsett í hjarta Reykjavíkur við Laugaveg. Hönnun þess er nútímaleg og sniðin að fjölbreyttum þörfum gesta.
Sérstaða hótelsins felst í því að mikið er lagt upp úr þægindum í hverju og einu herbergi. Markmið okkar er að gestum líði eins og heima hjá sér.
Gestir geta valið á milli mismunandi gerða af herbergjum, allt frá einstaklingsherbergjum til tveggja herbergja íbúða.
Hótelið er staðsett í kjarna 101 við Laugaveginn, sem gerir gestum okkar kleift að njóta þess besta sem Reykjavík hefur upp á að bjóða í þægilegri göngufjarlægð. Hótel Frón var byggt árið 1998 og hefur stækkað jafnt og þétt síðan.
Það er nú á fjórum hæðum og með 90 herbergjum.

Vinaleg Þjónusta
Hótel Frón býður upp á frábæra og vinalega þjónustu. Allir starfsmenn eru boðnir og búnir að veita gestum ráðleggingar og aðstoð. Hótelið býður upp á góðan morgunmat alla daga frá kl. 7 til 10 fyrir hádegi. Það var opnaður nýr veitingastaður á jarðhæð hótelsins þann1.Mars.2008 sem ber nafnið Santa María sem er ekta Mexican Bistro.

Afþreying í Reykjavík
Hótel Frón er staðsett á besta stað við Laugaveginn. Í næsta nágrenni er að finna helstu veitinga- og skemmtistaði borgarinnar. Gisting á Hótel Fróni er því kjörin fyrir þá sem vilja hafa allt í göngufæri. Starfsmenn hótelsins veita ráð um val á veitinga- og skemmtistöðum og hvar er best að versla.

Verið velkomin á Hótel Frón og njótið þess að vera í vinalegu og glæsilegu umhverfi í hjarta miðborgarinnar.



 
 
 
 
Activities | Accommodation | Car Rentals | Culture | Restaurants
Tours & Transportation | Taxfree Shopping | Sitemap | Home

Please mail to webmaster@travelnet.is if you have any comments or questions about this website. Copyright 1997-2009 Travelnet.is