Gallerí og handverkshús

Mikil gróska hefur verið í Íslenskri hönnun og handverki síðustu árin. Nú er svo komið að flest byggðalög hafa sín eigin handverkshús og þar er margt að sjá og skoða. Sérstök rækt er lögð við Íslenskt hráefni og það er gaman að sjá hvað hægt er að gera úr ull, skinni, roði og beinum. Þar sem allir hlutir eru einstakir skaltu ekki láta hjá líða að kíkja inn. Og ágætt er að byrja á þjónustusíðunum okkar.