Söfn

Hér getur að líta skrá yfir öll söfn á Íslandi. Íslensk söfn eru margvísleg, grasagarðar, myntsöfn, minjasöfn einstakra byggða, listasöfn svo nokkuð sé talið. Þannig má til dæmis geta þess að á Vesturlandi er búvélasafn á Hvanneyri, Byggðasafn á Akranesi fyrir Akranes og nærsveitir, Byggðasafn Dalamanna, Byggðasafn Ólafsvíkur, Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla, Safnhús Borgarfjarðar og Sjómannagarðurinn í Snæfellsbæ.