Ferðir

Allir sem ferðast um Ísland gera það alfarið á eigin vegum eða með ferðaþjónustuaðilum í skipulögðum ferðum eða nota bland af hvoru tveggja. Íslendingum hættir um of til að ætla að sjá sem mest af landinu þá þeir ferðast en fara oftar en ekki lang yfir skammt. Það er oft betra að skipuleggja ferðina áður en lagt er af stað. Ferðanetið er rétta tækið til þess. Ferðastu um á vefnum það er ódýrasti ferðamátinn skoðaðu og spurðu um það sem þú hefur áhuga á. Ef þú þarft frekari upplýsingar þá getur þú sent okkur eða viðkomandi ferðamálafulltrúa tölvupóst.

Við á Ferðanetinu viljum benda á að ferðaþjónusta er umfangsmikil atvinnugrein, við hana starfar fagfólk sem veitir þjónustu eins og hún getur oft best orðið. Þannig hefur fjöldi menntaðra leiðsögumanna margfaldast á síðari árum þessir aðilar bjóða oftast gönguferðir um heimahéruð undir leiðsögn og víst að hafir þú áhuga á að kynna þér einstök svæði vel þá er fátt betra en að fara í slíka ferð. Þá má ekki gleyma ferðafélögunum og ferðaskrifstofunum. Úr miklu er að velja en enn og aftur ætlir þú á eigin vegum þá skaltu nota Ferðanetið því enginn annar miðill á netinu hefur jafn mikið magn upplýsinga sem hann.