Að ferðast um Ísland á eigin vegum
Flestir Íslendingar kjósa að ferðast um landið á eigin vegum fremur en að kaupa pakkaferð. Þegar ferðalgið er skipulagt er æskilegt að ákveða hvað á að skoða og hversu miklum peningum á að kosta til.
Þá er að athuga hve langur tími er til umráða og þá hvað viltu gera? Ef þú ert náttúruunnandi og vilt kyrrð og ró íslenskrar náttúru þá skaltu fara hægt yfir og að sjálfsögðu sem mest fótgangandi eða að minnsta kosti gefa þér tíma á hverjum stað. Við bendum þér á að viljir þú t.d. fara um Hornstrandir þá er á Ferðanetinu göngubók Snorra Grímssonar leiðsögumanns, Snorri býður auk þess leiðsögn um Djúp. Og þeir eru vitaskuld fleiri leiðsögumennirnir.
Að sjálfsögðu er hægt að fá leigðan bíl eða ferðast á milli staða með flugvél. Margar bílaleigur eru í Reykjavík og víða úti á landi. Flugfélögin annast flug milli staða. Það eru yfir 30 aðilar sem bjóða upp á skoðunarferðir með bát og svo mætti lengi telja.
Ferðanetið er sérstaklega hannað fyrir þig sem vilt ferðast um Ísland á eigin vegum, þess vegna skaltu gefa þér tíma til að skoða þjónustusíður þeirra sem auglýsa á vefnum okkar. Þú kemst á Þjónustusíðurnar með því að smella á auglýsinguna, nafn viðkomandi í gulu boxunum eða logo. Þar færð þú ítarlegar upplýsingar um viðkomandi.