Nesbúð er hótel og veitingastaður á Nesjavöllum:

Ægifögur náttúra er sérkenni staðarins

Nesbúð er hótel og veitingastaður á Nesjavöllum þar sem hægt er að dvelja í góðu yfirlæti í ægifögru umhverfi. Nesbúð er tilvalinn áningarstaður einstaklinga eða hópa sem vilja njóta náttúru Íslands í þægilega umhverfi og nánum tengslum við náttúruna.

Nesjavellir og Hengilssvæðið allt er ein helsta náttúruperla Suðurlands og Nesbúð er einungis í 25 km fjarlægð frá Reykjavík. Gufurstrókarnir og stórfengleg náttúra Nesjavalla gera það að verkum að staðurinn á engan sinn líka. Á Nesjavöllum er að finna fjöldann allan af gönguleiðum í fallegri náttúru um eitt helsta háhitasvæði Íslands. Nesjavellir eru þekktir fyrir ævintýralegt landslag, hvera- og gígasvæði, ár og stöðuvötn ásamt fjölbreyttu gróðurfari.

Í Nesbúð og nágrenni er að finna fjölbreytta afþreyingu. Hægt er að fara í styttri og lengri gönguferðir, boðið er upp á bátsferð og veiði í Þingvallavatni, hestaferðir, skoðunarferðir um Þingvelli og ævintýraferðir á vélsleðum um Hengilssvæðið á veturna.

Hótel Nesbúð nýtur vaxandi vinsælda sem samkomustaður fyrir hvers kyns mannamót, fundi, ráðstefnur, námskeið, árshátíðir og starfsmannaferðir.

Nesbúð, Nesjavöllum, 800 Selfoss.
Tel.: (354) 482 3415. Fax (345) 482 3414


English

Frekari upplýsingar er að finna á
www.nesbud.is